86. Margt undarlegt með stúdentaíbúðirnar

Ég gerist svo glannalegur að segja að þessar fréttir komi mér ekki á óvart, þó sárlega vanti nánari upplýsingar í greinina á Mbl.is

Að því ég kemst næst er það söfnunarfé frá Happdrætti háskólans sem stendur undir stórum hluta kostnaðar við byggingar stúdentaíbúða. Þá á víst leigan að vera á kostnaðarverði líka.

Ég hef ekki enn getað skilið hvernig á því stendur að apparat sem leigir út á kostnaðarveðri, og fær í ofanálag milljónir á milljónir ofan í happadrættistekjur, skuli ekki geta haft nóg framboð af námsmannahúsnæði til að anna eftirspurn.

Að biðlistar upp á hundruðir manns árlega skuli fá að viðgangast, þegar íbúðirnar eru ekki leigðar út í tapi, er með öllu óskiljanlegt. Ef bissnesmódelið fúnkeraði eins og það á að gera, þá væri löngu búið að kaupa upp allar íbúðir í nágrenni háskólanna, eða byggð hugguleg og hagkvæm hús, og íbúðirnar leigðar á mun lægra verði til nemenda en raunin er.

Þegar maður svo rýnir í heimasíðu Bygginafélagsins, skín í gegn ógagnsæið. Engar upplýsingar er þar að finna um fjárhag félagsins, tekjustofna, og ársskýrslur. Er nema von, að eitthvað vafasamt gerist þegar engin krafa virðist hafa verið gerð um sýnileika út á við um innri mál félagsins.

 

Þetta er svo auðvitað bara eitt dæmi af mörgum. Hversu margar nefndir og félög eru ekki starfandi hér og þar, með lélegt peningaeftirlit og fullt af undarlegum færslum? Hversu margar hundruðir milljóna eru ekki að hverfa í svona "þægilegar" stofnanir eins og Byggingafélagið?


mbl.is Fjármálamisferli kært
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og sést í fréttinni þá tengist BN ekki HÍ og fær þar af leiðandi engan pening frá happdrættinu.

Glöggur (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 01:45

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þessi fráfarandi stjórn sem þarna um ræðir er spillt inn að beini, fyrir þessu hef ég ekki bara heimildir heldur persónulega reynslu! Ég bjó í þrjú ár í húsnæði frá þeim með konu og tvö lítil börn, kyndingin var ónýt og börnin því alltaf hálflasin, sem leiddi á endanum til þess að ég hraktist úr námi. Í húsinu var sjaldan svefnfriður fyrir partístandi, og virtist því vera lítið sinnt þó svo löggan hefði margoft verið kölluð til vegna ónæðis, a.m.k. héldu lætin alltaf áfram.

Í hinum enda hússins bjó fólk sem hvorugt var í námi en það er skilyrði fyrir að fá aðgang að þessu húsnæði sem er niðurgreitt og styrkt af hinu opinbera, síðar kom í ljós að sá sem þar bjó var skyldur einum á skrifstofu byggingafélagsins! Við gerðum framkvæmdastjóra félagsins viðvart um þessa misnotkun á húsnæði félagsins, en vorum sjálf um svipað leyti að segja upp leigunni og flytja í eigið húsnæði. Ég veit ekki hver voru viðbrögðin önnur en þau að við fengum sendan reikning fyrir viðgerðum á meintum skemmdum á íbúðinni upp á ígildi hálfs árs leigu hvorki meira né minna! Og það fyrir (að mestu leyti) eðlilegt slit eins og á málningu (Málning hf), hurðum og gólfefnum (Kährs, Egill Árnason), sem voru svo léleg að ef ég hefði keypt þau sjálfur væri ég löngu búinn að skila þeim og fá endurgreitt! Þar að auki var þessi upphæð langt undir því lögboðna hlutfalli af greiddri leigu sem gera skal ráð fyrir í eðlilegt viðhald vegna slits, þannig að í raun hefðu þeir átt að þakka okkur fyrir því þeir högnuðust á að leigja okkur sem þessu nemur! En nei, í staðinn átti einfaldlega að reyna að kúga okkur til að bera ALLAN kostnaðinn af því að undirbúa íbúðina fyrir næstu leigjendur. Þar að auki var um algjört okur að ræða, það kostar ekki svo mikið að heilmála eina íbúð! Nýja íbúðin okkar var 50% stærri og kostaði málning á hana um kr. 20.000 og vinnan tók 2-3 daga fyrir tvo menn, ef ég væri á sama taxta og þessir málarar væri ég orðinn milljónamæringur!

Endurtek að við höfðum búið þarna í þrjú ár, í nýlegu húsi sem var þó svo lélegt að einn veturinn sprungu fullt af rúðum þar út af frostinu einu saman! Samt sem áður hefur sami verktaki (Þórtak) fengið úthlutað flestum nýbyggingum á vegum félagsins síðan þá. Ég hafði rætt þennan slaka frágang og léleg gæði húsnæðisins oft og mörgum sinnum við umsjónarmann fasteigna BN sem tók undir þá skoðun mína að t.d. málningin á veggjunum væri einfaldlega ónýt frá upphafi og parketið stæði engan veginn undir væntingum miðað við loforðin í sjónvarpsauglýsingunum. Framkvæmdastjórinn virtist ekki á sama máli, a.m.k. var endurmálun íbúðarinnar bróðurpartur af upphæðinni sem okkur var gert að greiða. Og það hefðum við sennilega þurft að gera ef sá er þetta ritar hefði ekki kjaftinn á réttum stað, fyrir neðan nefið og ofan hökuna.

Guð má vita hversu marga aðra fátæka námsmenn þeir hafa reynt að taka í ra*****ið með þessum hætti. Ég vona heitt og innilega að Sigurður fráfarandi frkvstj. BN verði dæmdur í langa fangelsisvist og helst að hann lendi í klefa ásamt dæmdum nauðgara með óræða kynhneigð! ("Beygðu þig eftir sápunni kallinn minn!")

Guðmundur Ásgeirsson, 26.4.2008 kl. 03:32

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Til að fyrirbyggja misskilning og taka af allan vafa þá er ég fyrir ofan að skrifa um þessa spilltu starfsmenn félagsins sem voru reknir, en ekki stjórnina sjálfa. Eftir því sem ég best veit er hún skipuð fulltrúum aðildarfélaga BN sem eru námsmannasamtök nokkurra háskóla (annara en HÍ), sjálfur var ég í HR á þessum tíma.

Guðmundur Ásgeirsson, 26.4.2008 kl. 03:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband